22. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 17. apríl 2018 kl. 08:00


Mættir:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 08:00
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 08:00
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 08:00
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 08:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 08:00
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 08:00
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 08:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 08:00
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 08:27
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 08:15

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Fundurinn var sameiginlegur með fjárlaganefnd. Bergþór Ólason formaður umhverfis- og samgöngunefndar stýrði fundi.

Bókað:

1) 494. mál - fjármálaáætlun 2019--2023 Kl. 08:00
Á fund nefndanna mættu Guðmundur Ingi Guðbandsson umhverfis- og auðlindaráðherra, Hugi Ólafsson, Stefán Guðmundsson, Sigríður Auður Arnardóttir, Reynir Jónsson og Björn Barkarson frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og kynntu þann hluta fjármálaáætlunar sem fellur undir málefnasvið ráðuneytisins. Þá svöruðu gestir spurningum nefndarmanna.

2) Önnur mál Kl. 09:32
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:34